*Knattspyrnustjóri
Southampton, George Burnley sagði að ungstirnið
Gareth Bale hafi gert rétta ákvörðun um að
spila áfram fyrir félagið, en Bale hafnaði tilboði Tottenham
til þess að fara fremur til Manchester United, sem þó voru of
seinir á leikmannamarkaðinum að þessu sinni.
*Sir Alex
Ferguson segir að nú þurfi Manchester United einungis
nokkur stig í viðbót til að landa Englandsmeistaratitlinum, en það
gerði liðið síðast tímabilið 2002/2003.
*Spánverjinn
Xavi segist hafa fengið tilboð frá Man.Utd og að
United menn væru að senda inn tilboð á Xavi sem leikur með
Evrópumeisturunum í Barcelona. Hann sagði að United vildi fá hann í
skiptum við Cristiano Ronaldo, sem hefur verið
sjóðheitur á tímabilinu(2006/2007)!
*Frank
Rijkaard sagði að Cristiano
Ronaldo væri frábær leikmaður þó svo að ólíklegt væri
að Man.Utd myndu taka tilboði í drenginn, sem er einungis á 22.
aldursári.
*Ronaldo hefur einnig verið
orðaður við helstu keppinauta Barcelona, Real Madrid, sem voru
nálægt því að landa leikmanninum í sumar, eftir atvikið fræga við
Wayne Rooney á HM 2006.
* Líklegt þykir að
Louis Saha verði mættur til leiks á sunnudaginn
gegn Tottenham Hotspurs!

Á
fleygiferð: Ronaldo. Fer hann til Barcelona? Fer hann til
Madrídar? ...Eða verður hann bara áfram í Manchester United? Við
vonum það allavega!